Myndir

Hero Image

07.03.2026Evelyn Ýr

Fyrsta skipulagða myndatakan fyrir litagagnabankann fór fram fyrir tveimur vikum. Dagurinn var mjög kaldur og það tók svolítið á að standa í kuldanum, sérstaklega fyrir ljósmyndarann. Það var samt dásamlegt að sjá alla þessa fallegu hunda og hitta eigendur þeirra sem tóku þátt. Fyrir nokkrum dögum gat ég afhent þeim myndirnar sem þeir fengu til eigin notkunar og ég er svo ánægð að sjá fullt af þeim á samfélagsmiðlum stoltra eigenda og ræktenda.

Ég hef fengið beiðni úr nokkrum áttum um að bæta við hvolpamyndum í gagnabankann, svo hægt verði að sjá þróun litsins frá hvolpsaldri og fram á fullorðinsár, því litir og merkingar geta breyst með tímanum. Mér þykir þetta sjálf mjög áhugavert og mikilvægt, þannig að ég mun verða við þeirri ósk. Eigendur hunda sem koma í myndatöku fá sérstakan tengil til að senda inn hvolpamyndir sem fara síðan í gagnabankann.

Myndin hér að ofan er af Logeyjar Plútó; hann var einn af þeim hundum sem mættu þann dag. Brosið hans er ómótstæðilegt, er það ekki?

Í lokin vil ég hvetja ykkur til að lesa líka nýjustu söguna sem bættist við sögubankann; hún fjallar um Hrafnkötlu Esju sem er mikil hetja að sögn eigenda hennar.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]

Fylgdu okkur

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin