Hrafnkötlu Esja

Hero Image

04.03.2026Kristín Bjarnadóttir

Esja (Hrafnkötlu-Esja) IS30395/21

 

Esja er fædd 17. febrúar 2021 – hún er illa haldin af bíladellu. Bæði er ofboðslega gaman að ferðast í bíl og toppurinn á tilverunni er að elta þá geltandi og reka þá af yfirráðasvæðinu. Í maí 2022 varð hún fyrir bíl sem keyrði fram hjá. Það vildi til að bíllinn var á lítilli ferð, þannig að hún lifði slysið af. Það varð þó ekki til að hún læknaðist af bíladellunni og enn í dag er jafn nauðsynlegt að elta alla bíla sem keyra fram hjá og það var þegar hún var enn á fjórum fótum.

 

Farið var með Esju beint til dýralæknis, þar sem hún steinrotaðist við ákeyrsluna. Hún rankaði við sér á leiðinni og ætlaði sér greinilega að fara beint í að halda áfram að hlaupa á eftir bílnum, án þess að átta sig á að hún hafði misst úr nærri korter og bíllinn löngu farinn. Esja var sett í myndatöku og sónarskoðuð bæði á hrygg og í brjóstholi til að útiloka innvortis blæðingar. Ekkert fannst að, fyrir utan nokkrar brotnar tennur, engar innvortis blæðingar og engin beinbrot, en aftur á móti var annar framfóturinn algjörlega tilfinningalaus. Ákveðið var að hún færi heim og það yrði fylgst með hvort hún fengi aftur tilfinningu í fótinn og hvort blóðrásin væri í lagi, svo ekki kæmi drep í fótinn. Blóðrásin virtist vera alveg í lagi, en fóturinn hékk bara niður og elsku litla skinnið hafði enga stjórn á hvar hann væri. Þá var ákveðið að setja fótinn í fatla þannig að hann væri ekki alltaf fyrir. Fyrstu vikurnar var Esja ansi mikið á trýninu þegar hún var á ferðinni, því það var nú ekki lengur nema einn framfótur til að hlaupa á.

 

 

Hún var ekkert á því að gefast upp, og hinir hundarnir á heimilinu — Salka (border collie) og Álfur (íslenskur fjárhundur) — voru svo góð við hana, léku við hana þegar hún vildi og leyfðu henni svo að hvílast þegar henni hentaði. Það var eiginlega eins og hún væri í sjúkraþjálfun hjá Sölku, svo mikill var skilningurinn á aðstæðum. Lengi átti Esja erfitt með að fara tröppur, sérstaklega að fara niður. Svo heppilega vill til að á kaffistofunni í hesthúsinu hjá okkur eru ekki nema tvær tröppur til að komast niður í hesthús, sem betur fer ekki fleiri, því til að byrja með var það ansi oft sem hún rúllaði niður af því að fóturinn tók ekki rétt við þyngdinni.

 

 

Núna, fjórum árum síðar, er Esja í fullu fjöri. Hún hleypur á eftir krumma, rífst og skammast í hinum hundunum á heimilinu. Hún er enn í „sjúkraþjálfun“ hjá Sölku og þegar Esja er búin að fá nóg af ólátum, þá spilar hún hiklaust út „fatlaðaspilinu“, þ.e.a.s. gefur alvarlega til kynna að það megi sko ekki leggja sig í einelti, því hún er jú fötluð.

 

 

Esja er mikill dugnaðarforkur, hefur komið upp 11 Rimakots-hvolpum í tveimur gotum (5 hvolpar og 6 hvolpar). Hún lætur ekki í minni pokann fyrir neinum og verður alltaf að eiga síðasta orðið. Það kemur alltaf eitt bofs þegar rifrildum er lokið, líka þegar við erum að skamma hana fyrir eitthvað.

 

Þrátt fyrir allt sem á hefur gengið er Esja lifandi sönnun þess að vilji, lífsgleði og smá húmor geta unnið sigra á hverju sem er.

 

Febrúar 2026

 

 

Titilmynd: Carolin Giese, 21. febrúar 2026.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]

Fylgdu okkur

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin