Sögusetrið og fleiri fréttir

Hero Image

27.02.2026Evelyn Ýr

Undanfarnar vikur höfum við endurbætt húsnæði sögusetrisins. Við áttum eftir að klæða loftið og lakka gólfið. Til þess tókum við sýninguna niður og settum hana upp aftur um leið og allt var tilbúið.

Núna höfum við einnig bætt við tveim tungumálum fyrir upplýsingarspjöldin. Hægt er að skanna QR kóða á spjöldunum og lesa textana á þýsku eða frönsku. Við höfum möguleika á að bæta við eins mörgum tungumálum og við viljum en til þess þurfum við að þýða textana. Eitthvað sem við getum gert með tímanum.

Þrjátíu manna hópur hefur heimsótt okkur fyrir viku síðan og voru einhverjir að nýta sér þýskuna.

Þann 8. febrúar hélt ég netfyrirlestur um sögu íslenska hundsins að beiðni ISIC og um 110 manns fylgdust með honum. Eftir því sem ég veit á að gera upptöku fyrirlestursins aðgengilega á heimasíðu ISIC.

Núna í febrúar fengum við fjögurra blaðsíðna umfjöllun í þýskum tímariti, útgefnu af IPZV. Hægt er að lesa hana hér (á þýsku fyrir þá sem skilja hana).

Vinnan við verkefnið „litir íslenska hundsins" er einnig komin af stað. Síðasta helgi tókum við myndir af 23 hundum og ljósmyndarinn Carolin Giese/LinaImages er núna að vinna myndirnar. Fleiri myndatökur munu eiga sér stað á næstunni. Forritun gagnabankans er einnig komin af stað.

Það er svo gaman að vinna öll þessi verkefni í þágu þjóðarhundsins, að hitta og kynnast fólki og hundum.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]

Fylgdu okkur

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin