
19.03.2026Evelyn Ýr
Nú er kominn tími til að ýta þriðja verkefni ársins af stað. Ég ætla að setja upp huggulegan stað á Sögusetrinu þannig að fólk geti sest niður, tekið bók úr bókaskápnum og lesið, eða tekið upp heyrnartólin og hlustað á hundasögur. Ég er komin með dálítið safn af sögum hér á síðunni, en mig vantar fleiri sögur sem gaman er að varðveita og gott er að lesa upp. Þess vegna auglýsi ég aftur eftir sögum. Það geta verið sögur sem fólk langar að deila um hunda sína, en ég væri líka mjög þakklát fyrir ábendingar um sögur íslenskra hunda í bókmenntum sem fólk hefur rekist á.
Viltu segja sögu hundsins þíns eða veistu um áhugaverðar sögur sem hægt er að fletta upp í bók? Ég tek glöð á móti sögum, myndum og ábendingum!
Myndin hér að ofan er af Bak frá Flögu, sem Björn Sigurðsson var svo elskulegur að leyfa mér að nota. Fleiri myndir og stutta sögu um Bak má finna hér.
Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]


