
19.04.2026Evelyn Ýr
Það er svo sannarlega vor í lofti þessa dagana og styttist í sumaropnun Sögusetrisins. Frá 1. maí og út september verður opið daglega frá kl. 9–18.
Það hefur þó verið ýmislegt í gangi hjá okkur undanfarið. Nokkrir hópar ferðamanna hafa komið í heimsókn, og við fengum Ferðamálastjórann Arnar Má Ólafsson ásamt fleiri starfsmönnum Ferðamálastofu og framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, Halldór Óla Kjartansson, í heimsókn. Við tókum einnig þátt í verkefninu Sunnudagar á safni hér á Norðurlandi vestra og héldum vel sóttan viðburð, Torfhúsrölt og þjóðarhundurinn, í Sæluviku Skagfirðinga. Þá fór fram önnur myndataka fyrir verkefnið um litaafbrigði íslenska fjárhundsins, þar sem Carolin Giese Linaimages tók á ný frábærar myndir af fallegum hundum, en í þetta skipti fyrir framan torfhúsið okkar.
Nafnabankinn heldur áfram að vaxa og eru þar nú komin rúmlega 800 nöfn. Einnig hafa bæst við sögur, og ég er farin að skoða hvaða þeirra henta best til upplestrar svo gestir geti hlustað á þær í rólegheitunum á Sögusetrinu.
Það er alltaf ánægjulegt þegar starfsemin fer aftur í gang eftir veturinn, en ég er líka mjög þakklát fyrir að hafa góðan tíma yfir vetrarmánuðina til að vinna að öllum þessum frábæru verkefnum um þjóðarhundinn. Ég er meira að segja farin að hugsa um hvaða verkefni tengd þjóðarhundinum gætu ratað á dagskrá næsta vetur.
Myndin sem fylgir þessum pósti er af Breiðanes Fönn, þeirri yngstu á bænum, dóttur Sóma sem mun ávallt eiga heiðurinn af því að hafa verið kveikjan að þjóðarhundarverkefninu mínu. Myndin er fallegu Fönn tók Carolin, og mun hún fara inn á litagagnabankann.
Sumardagurinn fyrsti er eftir örfáa daga, og ég vil óska lesendum gleðilegs sumars og þakka öllum þeim sem ég hef átt samskipti við fyrir liðinn vetur.
Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]


