
08.05.2026Evelyn Ýr
Þrátt fyrir að stofn íslenska fjárhundsins sé enn fremur lítill er tegundin almennt heilbrigð og mjög langlíf í samanburði við margar aðrar hundategundir.
Á dögunum frétti ég af hundi sem varð rúmlega tuttugu ára gamall – það elsta dæmi sem ég hef heyrt um. Hægt er að lesa um hann, Ask, í nýjustu sögu sem hefur bæst við safnið: Askur–Laxi vom Rensberg.
Myndin hér að ofan sýnir Kríu, tekin í febrúar 2024 þegar við framleiddum myndefni fyrir Sögusetrið. Kría fæddist 19. desember 2009 og kvaddi nýlega, þann 23. apríl, sextán ára gömul. Hún var ræktunartík hjá Connie á Breiðanesi og átti tólf afkvæmi. Sú yngsta í hundahópnum mínum, Breiðanes Fönn, er barnabarnið hennar.
Kría var alltaf blíð, róleg og með þann sjarma sem eldri hundar bera með sér. Henni er sárt saknað, en hún lifir áfram í minningum þeirra sem hittu þessa hundadrottningu – og í börnum og barnabörnum hennar.
Það er forréttindi að fá að eiga hund í mörg ár.
Langlífi íslenska fjárhundsins endurspeglar heilbrigðan erfðagrunn tegundarinnar og þá alúð og ábyrgð sem ræktendur hafa sýnt í gegnum tíðina.
Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]


