Upptaka af fyrirlestrinum á vegum ISIC

Sep 11, 2026

Evelyn Ýr

Í febrúar á þessu ári hélt ég fyrirlestur á vegum ISIC – Icelandic Sheepdog International Cooperation (alþjóðlegt samstarf um íslenska fjárhundinn) um sögu íslenska fjárhundsins í aldanna rás.

Upptaka af fyrirlestrinum er núna aðgengileg á vefsíðu ISIC. Hún er á ensku og ber heitið "From Settlement to Survival: A Thousand Years of Iceland's National Dog". Endilega smellið á tengilinn til að hlusta.

Ég var nokkra daga að undirbúa þennan fyrirlestur og mér fannst gaman að vinna að þessu, að sökkva mér aftur í efnið sem ég hafði safnað, vistað eða skrifað um. Ég fór mjög djúpt í lesefnið til að vera alveg með öll samhengi á hreinu og setja það fram á skiljanlegan hátt. Útkoman tókst nokkuð vel og ég er mjög ánægð með að það sé búið að tryggja að fyrirlesturinn sé aðgengilegur fyrir alla sem hafa áhuga en höfðu kannski ekki tíma til að taka þátt í beinni útsendingu í febrúar.

Ég mæli líka með að skoða vef ISIC og fleiri upptökur sem þar er að finna; á þessu ári hafa þrír netfyrirlestrar farið fram.

Með þessum bloggpósti fylgir mynd af mér og hundunum mínum sem tekin var í sumar í tengslum við viðtal fyrir svissneskt tímarit. Ljósmyndarinn er Thomas Egli.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is

Fylgdu okkur

SóknaráætlunStjórnarráðRoyal Canin