
Aug 24, 2026
Evelyn Ýr
Nú er langt liðið síðan ég skrifaði nýjan bloggpóst og það þýðir bara eitt: það hefur verið mikið um að vera undanfarið.
Sumaropnun tók gildi 1. maí og hefur Sögusetrið verið opið alla daga frá kl. 9 til 18 og verður það svo út september.
Þann 24. maí varð Sögusetrið eins árs. Við vorum ekki með neina sérstaka uppákomu þennan dag en gleðjumst mjög yfir viðtökunum. Um 2.600 manns hafa nú þegar heimsótt Sögusetrið á þessu ári og við eigum enn eftir að taka á móti bæði einstaklingum og hópum í haust.
Margir Íslendingar komu í heimsókn og margir þeirra voru með hunda með sér (þar af voru margir íslenskir fjárhundar). Einnig er gaman að segja frá því að hingað kom talsvert af erlendu fólki sem á íslenska hunda í heimalandinu sínu og vildi fræðast um sögu tegundarinnar. Þá kom líka erlent hundafólk sem vildi kynnast þjóðarhundi Íslendinga á ferð sinni um landið. Það er augljóst að Sögusetrið íslenska fjárhundsins á svo sannarlega erindi. Athyglisvert er að sjá hvernig fólk fréttar af setrinu: mörg hver hafa fundið upplýsingar á netinu með því að leita upplýsingar um íslenska fjárhundinn, önnur hafa fylgst með okkur á samfélagsmiðlum lengi og ferðaskrifstofur hafa einnig bent á okkur. Allt er það jákvætt, en það er örugglega hægt að gera enn betur í markaðsmálum. Eitthvað sem ég get skoðað nánar næsta vetur.
Þann 18. júlí var haldinn Dagur íslenska fjárhundsins í ellefta sinn og auðvitað var það stór hátíðardagur hjá okkur í Skagafirðinum. 18. júlí er fæðingardagur Mark Watsons, sem var bjargvættur íslenska fjárhundsins, en hann á einnig þátt í varðveislu gamla bæjarins í Glaumbæ. Þess vegna er dagurinn gjarnan kallaður Mark Watson-dagur hér í firðinum. Nú hefur skapast hefð fyrir því að við höldum upp á þennan dag í samstarfi við Byggðasafn Skagfirðinga. Við byrjuðum á því að hittast hér á Lýtingsstöðum; hægt var að fá sér kaffi, skoða sýninguna og torfhúsin, og við frumsýndum myndir úr myndatöku um litafbrigði íslenska fjárhundsins. Síðan héldum við áfram og fórum saman í Glaumbæ, þar sem fleiri hundar bættust í hópinn og urðu þeir sýnilegir gestum og gangandi. Það er fullt af flottum og skemmtilegum myndum að sjá á Facebook-síðunni okkar.
Það er alltaf mikið tilhlökkunarefni að fagna saman á þessum degi. Einnig var viðburður á Árbæjarsafni í tilefni dagsins og sérstök dagskrá á netinu til að gefa erlendum unnendum tegundarinnar kost á að taka þátt og gera daginn fræðandi og skemmtilegan. Sjá umfjöllun á RÚV.
En nú er að koma haust og ég er komin með lista yfir áhugavert efni sem ég vil deila með ykkur - og ég lofa að það líður ekki jafn langur tími þar til ég pósta aftur.
Ég læt fylgja eina mynd frá Degi íslenska fjárhundsins sem tekin var í Glaumbæ þegar meðlimir Pilsaþyts og Þjóðbúningafélags Íslands komu í heimsókn til að taka myndir fyrir dagatal. Þau fengu hundana mína, Sóma og Fönn, lánaða til myndatöku og nú vona ég að ein af þessum myndum rati inn á dagatalið þeirra.
Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is


