
Sep 15, 2026
Evelyn Ýr
Haustið er gengið í garð, og því verða bráðum breytingar á opnunartíma Sögusetursins.
Út september er opið daglega (nema 26. september þegar réttað verður í Laufskálarétt) frá kl. 9–18. Að því loknu opnum við eftir þörfum í haust og vetur.
Þar sem við erum heima flesta daga, eða oft bara stutt frá, getum við opnað í flestum tilvikum. Til að tryggja að við séum við mælum við með að hafa samband símleiðis eða með tölvupósti.
Hús Sögusetursins fékk smá andlitslyftingu í ágúst og við erum mjög ánægð með útkomuna. Nú vantar bara lítinn pall við innganginn; annars er allt eins og við viljum hafa það.
Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is


