Askur-Laxi vom Rensberg

Hero Image

08.05.2026Andrea Mögle

Askur-Laxi vom Rensberg er elsti íslenski fjárhundurinn sem ég hef heyrt af en hann var rúmlega tuttugu ára þegar hann kvaddi. Andrea, eigandi hans, sendi mér myndir og nokkur orð um hann.

 

Askur fæddist 5. febrúar 2005 í Svartaskógi í Þýskalandi. Hann var úr fyrsta goti ræktandans Islandhunde vom Rensberg og átti þrjú systkini. Móðir hans var tíkin Astrida van het Reutse Veld, undan Smára sem Anders Hansen ræktaði á Íslandi árið 1998. Smári var sonur Ýrar Akks.

 

 

Faðir Asks var Laxi frá Thytur Stadir, fæddur í Hollandi árið 1997. Hann átti ættir að rekja bæði til Íslands og Þýskalands. Í ættinni má einnig finna tíkina Tofu von der Schreverheide, dóttur Kára frá Ólafsvöllum, sem var sonur Vasks frá Wensum úr ræktun Mark Watsons - en það er efni í annan útúrdúr.

 

Andrea og fjölskylda hennar fengu að velja fyrst hvolp úr gotinu og urðu þau fyrir valinu á Ask. Fljótlega kom í ljós að hann var háværasti hvolpurinn!

 

 

Askur greindist með brisvandamál á fyrsta árinu, en fékk lyf sem hjálpuðu honum að melta fæðuna eðlilega.

 

Askur fylgdi Andreu í útreiðartúra í mörg ár, eða allt þar til hann var um tólf ára. Þá fór honum að þyngjast göturnar, og síðar greindist hann einnig með elliglöp - sem hann var ekki alveg sáttur við.

 

 

 

Andrea og fjölskyldan áttu alltaf fleiri en einn hund, og allir hundarnir elskuðu Ask. Hann var ljúfur og góður við aðra hunda og ávallt rólyndur í þeirra návist.

 

 

 

Eitt sinn vakti Askur athygli ljósmyndara sem hafði aldrei séð íslenskan fjárhund áður. Ljósmyndarinn tók myndir af honum, og ein þeirra prýddi forsíðu hundatímarits í Þýskalandi.

 

Undir ævilok var Askur orðinn þreyttur, átti erfitt með að standa upp og ganga, og þegar lífsgæðin voru orðin það lítil var hann kvaddur með aðstoð dýralæknis þann 16. júní 2025. Askur var þá rúmlega tuttugu ára gamall.

 

Myndir aðsendar af Andreu og teknar af heimasíðu ræktandans.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]

Fylgdu okkur

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin