
30.01.2026Evelyn Ýr
Þann 8. febrúar ætla ég að halda fyrirlestur á Zoom um sögu íslenska fjárhundsins í aldanna rás. Fyrirlesturinn er á vegum ISIC og fer fram á ensku með yfirskriftina "From Settlement to Survival: A Thousand Years of Iceland's National Dog".
Tengill á fyrirlesturinn 8. febrúar 2026, klukkan 19.
Þar sem ég hef ekki áður nefnt ISIC, er kannski rétti tíminn núna til að segja frá því hvað ISIC er. ISIC stendur fyrir Icelandic Sheepdog International Cooperation (Alþjóðlegt samstarf um íslenska fjárhundinn). Aðildarþjóðir eru Austurríki, Belgía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Holland, Ísland, Noregur, Sviss, Svíþjóð, Þýskaland og Bandaríkin.
Meginmarkmið ISIC er að styðja við og hvetja til alþjóðlegs samstarfs í öllum málum sem gagnast, varðveita og vernda íslenska fjárhundinn.
Stutt saga
Árið 1994, eftir margra ára starf, tókst Hundaræktarfélagi Íslands (HRFÍ) og Deild íslenska fjárhundsins (DÍF) að sannfæra Alþingi um að það væri þjóðarskylda að varðveita íslenska fjárhundinn sem óaðskiljanlegur hluti íslenskrar menningar. Alþingi fól landbúnaðarráðherra að skipa nefnd til að hafa umsjón með framtíð og verndun íslenska fjárhundsins sem þjóðarhunds Íslendinga.
Guðrún R. Guðjohnsen, sem var formaður HRFÍ á þeim tíma, sat í nefndinni sem landbúnaðarráðherra skipaði til að hafa umsjón með íslenska fjárhundinum. Þegar meirihluti nefndarmanna taldi sig tilbúinn að leggja fram endanlega tillögu, var stjórn HRFÍ ekki sammála. Þeim fannst tillagan skorta mikilvægar grunnupplýsingar sem nauðsynlegar væru.
Vegna þessa ákváðu HRFÍ og DÍF að leita stuðnings erlendis, einkum til Svíþjóðar. Með aðstoð sænska félagsins, Islandhunden Sverige, fengust fyrstu alþjóðlegu stuðningsyfirlýsingarnar.
Í janúar 1996 var sent sameiginlegt skjal til Norðurlanda hundaræktarsambands (Nordic Kennel Union). Þetta skjal var undirritað af ræktunarfélögum og fulltrúum frá sex löndum: Íslandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Hollandi og Finnlandi. Þetta markaði formlegt upphaf alþjóðlegs samstarfs um íslenska fjárhundinn.
Ég hvet alla sem áhuga hafa að kynna sér vefsíðu ISIC en þar er margt áhugavert að finna, áhugaverða fyrirlestra og erindi sem hafa verið haldin í gegnum árin, mikilvægar greinar sem og árskýrslur frá þátttökulöndum sem gefa mjög góða innsýn í starfi ræktunarfélaga og samvinnu í gegnum ISIC.
ISIC sér einnig um gagnagrunninn þar sem allir skráðir íslensku fjárhundar eru að finna.
Sjá hér.
Ég hlakka til að tala um sögu þjóðarhundsins okkar og vona að margir sjái sér fært að hlusta.
Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]


