Heimsókn Pat Putman

Oct 05, 2026

Evelyn Ýr

Sumarið 2025 fengum við afar ánægjulega heimsókn á degi íslenska fjárhundsins (18.júlí). 

Patricia (Pat) Putman vann á sínum tíma í Wensum Kennel hjá Mark Watson og aðstoðaði hann við umönnun hundanna sem hann flutti frá Íslandi til Bandaríkjanna árin 1955 og 1956. Á 84. aldursári lét Pat loksins draum sinn rætast með því að koma til Íslands og heimsækja Glaumbæ. Hún heimsótti líka sögusetrið, þar sem hún hitti fjölda íslenskra fjárhunda og eigenda þeirra, og hélt síðan erindi í Glaumbæ. Heimsókn hennar er öllum sem hittu hana ógleymanleg.

Áður en hún kom norður í Skagafjörð dvaldi hún á Suðurlandi og hitti þar fólk úr stjórn Deildar íslenska fjárhundsins (DÍF). Sóley Ragna Ragnarsdóttir fékk tækifæri til að eiga langt samtal við hana um tíma hennar í Wensum Kennel og viðhorf hennar til íslenska fjárhundsins í fortíð og nútíð. Pat er formaður fræðslunefndar dómara og fulltrúi AKC fyrir samtök íslenska fjárhundsins í Ameríku (ISAA). 

Samtalið var birt á degi íslenska fjárhundsins á þessu ári og ég fékk leyfi hjá Sóleyju til að deila því hér. Ég hvet alla til að lesa þetta áhugaverða viðtal og þakka Sóleyju kærlega fyrir að varðveita minningar Pat með þessum hætti.

Mynd tekin í Glaumbæ 18. júlí 2025. Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri, kynnir Pat Putman fyrir gestum fyrir utan Áshús.


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is

Fylgdu okkur

SóknaráætlunStjórnarráðRoyal Canin