Litir og litarheiti íslenska fjárhundsins

Oct 23, 2026

Evelyn Ýr

Um síðustu helgi fór fram enn ein myndatakan fyrir verkefnið mitt um litaafbrigði íslenska fjárhundsins. Þetta var síðasta myndatakan, að minnsta kosti í bili. Fjörutíu hundar hafa nú verið myndaðir og næsta skref er að flokka myndirnar eftir litum og koma öllu inn á vefsíðuna. Það hljómar kannski einfalt, en er það ekki endilega í raun.

Í ræktunarmarkmiðinu er gert ráð fyrir eftirfarandi litum:
• Gulur og rauður í ýmsum blæbrigðum, allt frá ljósgrágulum eða ljósgulum lit til dökkrauðguls litar
• Leirhvítur
• Grár í ýmsum blæbrigðum
• Mórauður í ýmsum blæbrigðum
• Svartur

En svo koma merkingarnar, sem gera flokkunina aðeins flóknari.
Hvítar merkingar fylgja alltaf aðallit. Mjög algengt er að aðalliturinn sé ljósari frá hálsi, undir kvið og aftur á skottenda (botnótt).
Kolóttur blær á trýni og jafnvel svört hár og hárendar (kolhært ) fylgir gráum og oft gulum og rauðum feldlit.
Svörtum eða mórauðum feldlit fylgja oftast hefðbundnar gular eða grágular merkingar á kinnum, yfir augum, undir skotti og á fótleggjum. Flekkóttir hundar hafa misstóra ríkjandi flekki á líkama og geta auk þess haft aðrar
hvítar merkingar. Hvítar merkingar, eru oft óreglulegar, blesa (blesótt), önnur kinn eða helmingur höfuðs (skjömbótt), kragi (strútótt), á bringu, í kringum klær (sporótt), upp eftir löpp (löppótt), hátt upp eftir löpp (leistótt) og í skottenda (týra).
Litur er æskilegur á eða við eyru.

Þegar ég hóf undirbúning verkefnisins síðastliðinn vetur las ég í bók Gísla Páls, Íslenski fjárhundurinn, að í umfjöllun sinni um liti og nöfn styddist hann við óútgefna grein eftir dr. Guðrúnu Kvaran, íslenskufræðing.

Ég hafði samband við Guðrúnu til að forvitnast um greinina. Í ljós kom að hún hafði glatað henni ásamt ýmsum öðrum gögnum þegar tölvan hennar hrundi fyrir nokkrum árum. Hún sagði mér þó frá styttri útgáfu sem hefði birst í Sámi, tímariti HRFÍ, í desember 1989. Ég reyndi að finna eintak af blaðinu, en það reyndist erfitt.

Í sumar birtist svo færsla eftir Sóleyju Rögnu Ragnarsdóttur á Facebook-síðu Dags íslenska fjárhundsins. Þar sagðist hún hafa fundið þessa áhugaverðu grein eftir Guðrúnu þegar hún var að undirbúa þema dagsins í ár: litamerkingar á höfði íslenska fjárhundsins.

Þar komu meðal annars fram þessi heiti:

Blesóttur - Hundur með hvíta blesu á trýni sem getur náð upp á höfuð.
Skjömbóttur – Hundur með aðra kinn ljósa en hina dökka.
Kinnóttur – Hundur með ljósa eða hvíta bletti á annarri eða báðum kinnum.
Krímóttur - Hundur með dökka flekki á höfði.
Krúnóttur - Hundur með stakan blett á milli eyrna.
Kjömmóttur - Hundur með dökkleitar kinnar.
Grímóttur - Hundur með ljósa grímu yfir augabrúnir, fram yfir ennisbrún og út með kinnum.

Mikið var ég ánægð að greinin skyldi vera komin í leitirnar! Ég þakka Sóleyju kærlega fyrir að senda mér hana.

Greinin fjallar um litarheiti íslenskra fjárhunda, en Guðrún tengir litarheitin einnig við nöfn þegar við á.

Mig langar að deila þessari fróðlegu grein hér með ykkur. Með greininni læt ég fylgja mynd af Snætinda Kráku Sól, fallegri tík sem kom í myndatöku hjá mér um daginn. Hún er orðin 15 og hálfs árs en er enn hress og sæt. Í skráningu er litur hennar „svört þrílit“. Miðað við skilgreiningarnar hér að ofan mætti líka segja að hún væri kinnótt - eða hvað? Eða er hún kannski bara orðin grá með aldrinum?

Litarheiti íslenskra hunda - eftir Guðrún Kvaran
Flestir, sem umgangast dýr, vita að mörg orð eru til yfir liti þeirra og að önnur orð eru til dæmis höfð um liti hesta en um liti kúa og sauðfjár. Sem dæmi mætti nefna að sægrá kýr hefur sama lit og mósóttur hestur en hundur í þeim lit er sums staðar á landinu sagður blár.
Fyrir nokkrum misserum sá ég veggspjald sem gert hafði verið til þess að sýna liti hesta og nöfn þeirra. Á því voru margar litlar myndir af hestum og var litarheiti prentað undir hverri mynd. Þetta fannst mér til mestu fyrirmyndar þar sem mörg þessara heita eru nú að falla í gleymsku. Þótti mér þörf á sams konar spjaldi með myndum af íslenska hundinum og litaafbrigðum hans. Við athugun á heimildum í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans sá ég að huga þyrfti betur að litarorðum um hunda og kom mér þá í hug að leita sem svo oft áður til hlustenda þáttarins um Íslenskt mál í Ríkisútvarpinu. 
Áður en ég fór þó af stað með þá fyrirspurn fékk ég leyfi til þess að fara yfir spurningalista Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns um íslenska hundinn sem starfsmenn þar höfðu sent til heimildarmanna sinna víða um land. Meðal annars hafði þar verið spurt um liti hunda og fann ég þar margt sem spyrja þurfti nánar um. 

Við athugunum mínum bárust margar og góðar heimildir víðs vegar að af landinu og í ljós kom að ekki eru sömu orðin notuð um allt land. Einnig varð ljóst að orðaforðinn á þessu sviði er mun fátæklegri en ef hestar eiga í hlut.

Algengustu litir hunda eru hvítur, svartur, mórauður, grár og gulur en einnig er talað um kolótta hunda og jafnvel bláa eins og ég nefndi áðan.
Mórauður hundur, eða morrauður, er sagður móbrúnn eða rauðbrúnn og er sá litur einnig algengur á sauðfé. Nefnast þessir hundar stundum Móri eða Móra.
Gulur er litur á hundi með gulan feld, en hafi sá hundur skollitað trýni er hann sagður kolóttur. Nokkrir, sem nefndu mér orðið kolóttur, sögðu að það væri líka notað um gulan hund með dekkri lit á baki. Til dæmis getur hundur verið brúnkolóttur eða grákolóttur. Kolóttir hundar eru oft nefndir Kolur eða Kola. 

Ekki er algengt að tala um bláa hunda og hef ég einkum heimildir um það af Norðurlandi. Eru þessir hundar þar sagðir dökkþokugráir en blágráir á Suðurlandi. Þó þekkist eitthvað á Suðurlandi að tala um bláa hunda ef þeir eru ef þeir eru dökkmógráir.

Mórauður eða svartur hundur með breiða gjörð um hálsinn frá eyrum og aðeins aftur á herðar er strútóttur, móstrútóttur eða svartstrútóttur, en einnig eru heimildir um að hundur geti verið grástrútóttur eða gulstrútóttur jafnvel bleikstrútóttur, en það er eina dæmið sem ég hef um bleikan hund. Trýni á þessum hundum er oft einnig hvítt og jafnvel bringan. 
Töldu sumir heimildarmanna minna að ekki væri nauðsynlegt að hundurinn hefði kraga heldur nægði að trýnið væri hvítt og að hvít rönd væri upp frá trýni og upp undir augu. Strútóttur hundur er stundum nefndur Strútur en ekki hef ég rekist á skylt nafn á tík.

Í listum Þjóðminjasafns hafði verið spurt hvort menn þekktu orðin kápóttur, kjömmóttur og snoppóttur notuð um hunda en öll munu þau notuð um liti á sauðfé. 
Virðist nokkuð algengt að tala um kjömmóttan hund ef hann hefur dökkleitar kinnar, og heimildarmenn af Vestfjörðum sögðu mér að slíkur hundur væri sagður kinnóttur. 

Hundur með aðra kinn ljósa en hina dökka væri hins vegar skjömbóttur og fleiri dæmi eru um það bæði af Vestfjörðum og úr Árnessýslu. Sumir Sunnlendingar nefna litinn skjömpóttan og nota hann ef litbrigði voru glögg og ljósari liturinn ræður meiru.

Ekki virðast orðin kápóttur og snoppóttur vera mikið notuð um hunda en þau eru algeng um sauðfé. Ég fékk nokkur dæmi um snoppótta hunda af Suðurlandi og tóku allir heimildarmenn fram að aldrei væri þó talað um snoppu á hundi. Hér virðist litarheiti sauðkindarinnar fært beint yfir á hunda án tillits til upphaflegrar merkingar. Snoppóttur hundur hefur trýni í öðrum lit en skrokkurinn og oftast er þá um dekkri lit að ræða. Einnig er notað orðið krímóttur um þetta þ.e. ef ljós hundur er dökkur fremst á trýni, einstaka sinnum með dökka flekki á haus.

Um kápóttan hund hef ég dæmi af Norður- og Austurlandi. Sá hundur er oftast ljós, hvítur eða gulur, en dökkur á baki og nokkuð niður á síður.
Fleiri litarheiti þekkjast á hundum eins og flekkóttur, dílóttur, skolóttur, botnóttur og blettóttur. Flekkóttur er hundur ef hann hefur stóra dökka bletti eða flekki á ljósari grunni, blettóttur ef blettirnir eru ekki mjög stórir en dílóttur ef hann er með smáa dökka díla á víð og dreif á annars ljósum skrokki.

Nokkur sunnlensk dæmi fékk ég um að hundur væri skolóttur ef hann væri grábrúnn en ekki virðist sú notkun þekkjast annars staðar. Annars er skolóttur einkum litarorð notað um hesta sem eru dökkmóleitir.
Þá er einnig talað um botnótta hunda þótt sá litur sé yfirleitt notaður um sauðfé. Ég rakst einu sinni á frásögn af manni sem átti sjö hunda, alla botnótta og grimma. Ef hundur er sagður botnóttur er hann annaðhvort hvítur með dökka bringu, kvið og rass eða dökkur með hvíta bringu, kvið og rass.

Að lokum könnuðust mjög margir við lit á sauðfé og hundum, sem nefndur er bósóttur, sjaldnar bosóttur, og töldu flestir þær skepnur vera svartar eða dökkbrúnar að lit en ljósari á kvið og bringu. Hundur með þessum lit er oft kallaður Bósi en samsvarandi tíkarheiti þekki ég ekki.

Hundar geta verið nefndir eftir lit á löppum. Talað er um löppóttan hund ef hann er dökkur með hvítan lit nokkuð hátt upp eftir löppunum. Ef hvíti liturinn nær verulega hátt upp er hundurinn leistóttur en sporóttur ef hvíti liturinn er rétt í kringum klærnar. Þá fá hundarnir stundum nöfnin Spori eða Spora. 

Einnig er talað um hosótta hunda ef annar litur er neðst á löppum en aðallitur hundsins. Hundar geta til dæmis verið móhosóttir, hvíthosóttir eða svarthosóttir. Eru þeir þá stundum nefndir Hosi eða Hosa.

Ljós díll í endanum á dökku skotti hunds er oft kallaður tíra og sagt að hundurinn hafi tíru í skottinu. Þá nefnist hundurinn gjarnan Tíri en tíkin Tíra. Þessi sami díll kallast einnig þjófaljós af því að talið er að hann geti lýst þjófum í myrkri við iðju sina.

Þau litaheiti, sem nú hafa verið upp talin, eru þau sem tíðkast um landið á íslenskum hundum. Fullkominn óþarfi er að nota heitin beis og drapp eins og heyrist æ oftar að minnsta kosti hér á höfuðborgarsvæðinu. Flest þessara heita eru gömul og værivel ef þau mættu haldast.

Guðrún Kvaran, birt í Sámi, desember 1989

Mynd: Carolin Giese/LinaImages


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is

Fylgdu okkur

SóknaráætlunStjórnarráðRoyal Canin