Blog

Evelyn Ýr

Mál Fixe

Mál Fixe

Í bókinni Íslenski fjárhundurinn eftir Gísla Pálsson (1999) stendur á blaðsíðu 6:

„Til er málverk af hundinum Fixe, sem Johan Staalborn málaði árið 1763. Hundurinn var af íslenskum ættum, fæddur í Dantzig vorið 1759. Sama ár flyst hann til Stetin og kemst í eigu General G.A von Siegroth, sem síðar varð yfirforingi Kungl Södermanlands Regemente í Svíþjóð. Fixe þjónaði herra sínum af tryggð þar til hann dó í Kapsta í janúar 1772.“

Þótt ég hafi lesið bókina hafði ég aldrei veitt þessum texta sérstaka athygli. Kannski vegna þess að engin mynd af málverkinu fylgdi. Ég hafði heldur ekki tekið eftir því að málverksins væri getið annars staðar.

Það var ekki fyrr en ég fékk fyrirspurn frá Lucile, sem á og ræktar íslenska fjárhunda í Frakklandi og hefur aðstoðað mig við rannsóknir á frönskum textum, að Fixe vakti áhuga minn. Hún spurði hvort ég vissi eitthvað um þennan hund. Engum bjöllum hringdi hjá mér og því fór ég að leita á netinu.

Eftir dágóða leit fann ég mynd af póstkorti með málverkinu. Stuttu síðar fann Lucile vefsíðu Malmköpingsortens Hembygdsförening, sænsks átthagafélags fyrir Malmköping og nágrenni. Slík félög vinna að því að varðveita og kynna sögu, menningu og minjar heimabyggðarinnar. Þar er málverkið á skrá ásamt nokkrum upplýsingum.

Hershöfðinginn og hundurinn hans Fixe (1759–1772)

Gustaf Adolf von Siegroth (1725–1802) var sænskur hershöfðingi og aðalsmaður, þekktur fyrir umbætur á herþjálfun og menntun liðsforingja. Hann var yfirmaður Södermanlands-herdeildarinnar og kom á fót herskóla á æfingasvæðinu Malma hed árið 1781. Þar var meðal annars lögð áhersla á stærðfræði, landmælingar og herfræði.

Hann átti einnig stóran þátt í uppbyggingu Malmköping í Svíþjóð, sem fékk kaupstaðarréttindi árið 1785. Hans er því einkum minnst sem umbótamanns í sænska hernum og eins helsta frumkvöðuls að uppbyggingu bæjarins.

Von Siegroth var yfirmaður Kalmar-hersveitarinnar í Pommernstríðinu (1757–1762). Eftir uppgjöfina við Demmin árið 1759 var hann stríðsfangi í Stettin, þar sem hann keypti Fixe.

Á bakhlið olíumálverksins, sem er málað á striga af Johan Stålbom (1712–1777), lét von Siegroth rita eftirfarandi:

„Fixe. Tryggur hundur af íslensku kyni, fæddur í Danzig vorið 1759, sem gekk í þjónustu húsbónda síns í Stettin um haustið sama ár. Honum þjónaði hann af trúmennsku frá hvolpsaldri til æviloka, sem bar að á Kapsta í janúar 1772. Verðleikar hans og ævintýri voru mörg og hafa verið skráð, og mynd hans er varðveitt hér á Marianalund.“

Málverkið af íslenska fjárhundinum var gefið liðsforingjasveit Konunglegu Södermanlands-herdeildarinnar. Að mati yfirmanns herdeildarinnar hafði hundurinn verið húsbónda sínum trúr og því ætti hann að gæta dyra liðsforingjamessans. Samkvæmt frásögn í Strängnäs tidning hafði hann gegnt því hlutverki æ síðan, fyrst í Malmköping og síðar í Strängnäs.

Heimild: Strängnäs tidning, 3. september 1970.

Hvernig komst íslenskur hundur til Danzig?

Lucile fór að velta því fyrir sér hvernig íslenskur hundur hefði komist til Danzig í Póllandi á þessum tíma. Hún hafði því samband við Mariusz Kopiecki, sem ræktar íslenska fjárhunda í Póllandi, til að forvitnast um málið.

Mariusz útskýrði að árið 1759 hefði Gdańsk (Danzig) verið stór pólsk hafnarborg við Eystrasalt og gluggi Póllands út í heiminn. Szczecin (Stettin) væri hins vegar önnur borg, sem þá tilheyrði Prússlandi.

Að hans sögn átti Gdańsk viðskipti við allan heiminn og því gætu íslenskir hundar hafa borist þangað sjóleiðina, fremur frá Englandi en beint frá Íslandi. Í Englandi voru þeir vinsælir heimilishundar. Pólland átti mikil viðskipti við England og flutti út matvæli til Vestur-Evrópu, þar sem iðnvæðing var að hefjast. Mariusz taldi því líklegt að hundarnir hefðu komið frá Bretlandi eða Danmörku fremur en beint frá Íslandi.

Í áframhaldandi leit komst ég að því að von Siegroth átti höfuðból í Kapsta, þar sem Fixe dó. Hann átti einnig Marianalund, þar sem varðveita átti myndina af Fixe. Staðurinn var nefndur eftir eiginkonu hans, Elisabeth Mariana.

Enn hefur ekki tekist að finna frásagnirnar af ævintýrum Fixe sem nefndar eru á bakhlið málverksins. Þó er mögulegt að von Siegroth hafi skrifað um Fixe í dagbækur sínar, sem eru varðveittar í Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi. Hingað til hef ég ekki fundið stafræna útgáfu þeirra.

Ævintýri Fixe eru því enn dálítil ráðgáta. Kannski finnst þó einhver sem hefur tíma og löngun til að fletta í gegnum dagbækur von Siegroths í Stokkhólmi.

Leitin að málverkinu

Í fyrstu tókst okkur ekki að komast að því hvar málverkið væri niðurkomið. Við veltum því einnig fyrir okkur hvort Fixe væri hluti af stærra málverki eða hvort um sjálfstæða mynd af honum væri að ræða. Erfitt var að átta sig á því út frá ljósmyndinni á vefsíðu átthagafélagsins. Málverkið var orðið okkur mikið áhugamál og hélt jafnvel fyrir okkur vöku.

Ég ákvað því að biðja Linu, sem á og ræktar íslenska fjárhunda í Svíþjóð, um aðstoð. Hún var meira en til í að leggja okkur lið. Það tók hana ekki langan tíma að komast að því að málverkið hangir nú á Hotel Bishops Arms í Strängnäs. Þar eru húsgögn og minjamunir úr fyrrum liðsforingjamatsal herdeildarinnar í Strängnäs.

Linu tókst einnig að fá ljósmyndara á staðinn til að mynda bæði framhlið og bakhlið málverksins. Hún komst jafnframt að því að það er um 70–80 cm breitt.

Hægt er að sjá ljósmyndirnar, sem Per-Olof Rosén tók að beiðni Linu, ásamt fleiri myndum í Sögu um Fixe.

Elsti nafngreindi íslenski fjárhundurinn?

Ég get ekki annað sagt en að ég sé rosalega ánægð með hvernig Fixe-málið þróaðist, þótt við höfum ekki enn komist að því hver ævintýri hans voru. Ég er líka enn að velta því fyrir mér hvort Fixe hafi verið rakaður þegar málverkið var málað — mér sýnist það að minnsta kosti.

Það sem stendur þó upp úr í mínum huga er að þetta málverk er ein elsta mynd sem við eigum af íslenskum fjárhundi. Eftir því sem ég best veit er aðeins teikning Jacques de Sève, „Le Chien d’Islande“ frá 1753, eldri. Sú teikning varð síðar að koparstungu í Histoire naturelle eftir Buffon.

Fixe er hins vegar elsti nafngreindi íslenski fjárhundurinn sem ég hef fundið heimildir um. Það finnst mér hreint út sagt GEGGJAÐ!

Mig langar að þakka Lucile Verdier hjá Eðli lífsins-ræktuninni í Frakklandi innilega fyrir samstarfið og Linu Longberg hjá Sangilak-ræktuninni í Svíþjóð fyrir ómetanlega aðstoð.

Þetta stóra Fixe-mál sýnir hversu langt má komast með samstarfi og samtali þrátt fyrir landfræðilegar fjarlægðir. Það hefur verið ótrúlega gefandi!


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
fjarhundur@fjarhundur.is

Fylgdu okkur

SóknaráætlunStjórnarráðRoyal Canin