Stefsstells Kátur Kali

Hero Image

20.03.2026Vilborg Halldórsdóttir

“Vantar þennan hund heimili?”

ég skal eiga hann.

 

 

Svona voru mín fyrstu

samskipti við Kát Kala

loðmundinn

sem spígsporar hér út og inn

 

 

syngur með sínu nefi

og dansar

og er að verða 16 ára í sumar

 

 

Ég hefði aldrei trúað því

hve hundur getur breytt miklu

í lífi manns og til góðs.

 

 

Dýrin eru eitt tilfinningabúnt

þannig á einhvern

ofurmáta hljóðan hátt

heila þau

allt sitt nánasta umhverfi

 

 

draga fram blíðuna í fólki

og lækna þannig sitt nærumhverfi

 

 

Það eru ófá skiptin

sem ég er stöðvuð á förnum vegi

af ókunnu fólki

brosandi og aðallega til hans

hundsins

 

 

( og þetta var áður en

hann varð svona frægur á skjánum)

 

 

Ég sé það langar leiðir

hvernig hjartastöðin opnast

á manneskjunni

sem við mætum.

 

 

“Hann er svo háttvís hann Kátur”

sagði pabbi alltaf

það er rétt,

hann flaðrar ekki uppum þig

né frekjast

 

 

Að vísu er hann farinn

að taka hér meir og meir þátt

í tónlistarflutningi…

 

 

Hann geltir eiginlega aldrei

nema

þegar fólk syngur og hlær

eða þegar hann sér fótbolta

 

 

Hann elskar fótbolta

og er góður

svo fær,

að karakkarnir í götunni okkar

koma iðulega og spyrja eftir honum:

 

 

“Má Kátur koma út í fótbolta?”

 

 

Eða rollurnar maður minn…

 

 

Í fyrsta sinn sem ég fór með hann í göngur

var unun að fylgjast með honum

borgarhundinum

sem aldrei fyrr hafði smalað fé

 

 

Hvernig hann zikk zakkaði fyrir aftan kindurnar

og kom þeim þannig niður af fjallinu

 

 

Já, dýrin okkar stór og smá

 

 

Var það ekki Friðrik II Prússakeisari

sem átti að hafa sagt:

 

 

“Því betur sem ég kynnist mönnunum,

því vænna þykir mér um hundinn minn.”

 

 

Ég er nú ekki alveg þar

en

dýrin eru sko alls ekki

skynlausar skepnur

 

 

Kannski er það bara

HOMO DIGITAL

sem er skynlaus … ?

 

 

#heimameðhelga 27. 2. 2021

Ljósmynd af Káti Kala, Ágúst Elí Ágústsson

 

 

Stefsstells Kátur Kali fæddur 2005.

Faðir : Stjörnuljósa Mána Snarpur

Móðir : Stefsstells Aska Spesía


Hafa samband

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
+354 893 3817
[email protected]

Fylgdu okkur

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin