Baltó - Laufeyjar Íslands-Tenór frá Dverghamri
Sep 15, 2026
Atli Scheving
Baltó bjó í nágrenni við Vatnajökul og margar sögur eru til um hann, eiganda hans, Atla, og ævintýri þeirra. Þar má finna einstakar frásagnir af næmu innsæi Baltós sem varð þeim félögum til bjargar oftar en einu sinni. Með leyfi Atla birtast hér tvær slíkar frásagnir.
Frásögn 1 :
"Í mars þá fórum við saman eitt af jökullónunum hér fyrir austan (eins og ég geri svo oft á veturna). Það heitir Heinabergslón. Þar hitti ég einn félaga sem var að fara út á ísinn með hóp af ljósmyndurum og hann sagði mér að hann hafi farið deginum aður og mælt ísþykktina 38cm. Ég hafði ekki ætlað mér að fara út á ísinn þann daginn þar sem að það hafði hlýnað svo mikið frá deginum áður en þar sem að þessi félagi var að fara útá ísinn þá ákvað ég að gera slíkt hið sama. Ég setti a mig jöklabroddana og ég og Baltó byrjuðum að labba út á ísinn. Svo eftir um 5 mínútna labb þá snar stoppar Baltó. Ég segi honum að koma en hann snýr við og fer upp á einn ísjakann og geltir á mig. Þá geng ég að honum og klappa honum smá og held svo áfram i þeirri von um að hann elti. En þá byrjar hann aftur að gelta og labbar fram og til baka i átt að landi. Svo að ég ákvað þá að fara til baka með hann. Á leiðinni til baka geng ég a milli tveggja jaka og finn allt í einu ísinn vera að gefa undan. Þá bakkaði ég og fann aðra leið í land. Þegar ég var kominn í land þá tók ég utan um Baltó og ég hélt lengi utan um hann."
Frásögn 2 :
"Hann er magnaður. Hann hagaði sér á svipaðan hátt fyrir sirka 4 árum þegar við fórum á Skálafellsjökul. Það var þó ekki út á ísinn. En þegar við vorum komnir eftir um klukkutíma göngu þá ætlaði ég að fara aðeins lengra. En nei hann vildi það ekki. Svo á leiðinni til baka þá skellur á blind bylur (ekkert sem veðurspáin sá fyrir) rétt áður en við komum í bílinn"
Laufeyjar Íslands-Tenór frá Dverghamri kallaður Baltó
f. 26.09.2018 - d. 25.07.2026
Myndir: Atli Scheving


