Bósi frá Höskuldsstöðum

Hero Image

23.02.2025Evelyn Ýr

Þórhildur Bjartmarz fann tvær frásagnir um Bósa, sem hún birti á síðunni sinni Hundalífspóstur. Ég fékk leyfi hjá henni til að endurbirta þessar greinar, og er henni þakkað fyrir það.


Spurt um hæfileika Bósa frá Höskuldsstöðum.

Þessi frásögn um Bósa var unnin árið 1955 fyrir Mark Watson sem hafði séð hundinn þegar hann var á ferð í Skagafirði. Ekki er getið um þann sem skrifar þetta.

"Frásögn um Bósa á Höskuldsstöðum í Skagafirði.

Bósi á Höskuldsstöðum er gulur hundur, fremur ljós. Hann er með vel upprett eyru og hringað skott. Hann er 8-9 vetra gamall og er farinn að sýna nokkur ellimörk. Þó heyrir hann og ser ágætlega og er kátur. En fæturnir eru farnir að bila en er þó ekki haltur. Hann virðist lítið eitt taugaveiklaður. Segja má um Bósa að hann sé meiri dugnaðarhundur en vithundur. Geðgóður er hann og dagfarsgóður í allri umgengni.

Með tilliti til þess að fá undan honum hvolpa er rétt að taka fram eftirfarandi-efnislega haft eftir eiganda hundsins, Stefáni Jónssyni piparsveini en óðalsbónda á Höskuldsstöðum: „Bósi var mesti fjörhundur greyið. Já. Það var hann og duglegur að sækja fé en verri að reka með honum. Hann átti það til að bíta ef hann var orðin þreyttur. Nú er hann orðinn gamall, bara gamall hundur“.

Aðspurður um hæfileika til getnaðar sagði bóndi: „ Ja ég held að hann sé orðinn frekar linur við það, frekar linur. Hann hefur alltaf farið upp í Dal. Þar eru tíkur og verið þar á lóðaríi. Er mér er nær að halda að hann hafi ekki farið þangað uppeftir í ár”.

Hundurinn er ekki falur eins og er. Í sambandi við það sagði bóndinn: „ Ég þarf enga hundapeninga til að lifa á“ : Hann ætlar að láta vita ef hann skiftir um skoðun!"

Bósi var síðar seldur til Watson fyrir 1.000 kr og eigandinn fór með hann til Reykjavíkur og fékk greitt fyrir far og uppihald í 2 daga tæplega 300 krónur samkvæmt reikningi.

Það var ekki auðvelt fyrir bónda að láta Bósa af hendi. Hann lét hann með þeim skilmálum að hann fengi fréttir af honum og mynd þegar hann væri kominn á leiðarenda (til Kaliforniu) og svo þegar hundurinn væri allur.


Kveðjustund á Keldum

Þórhildur fann þessa frásögn á netinu. Því miður var hún ekki merkt höfundi en gerist líklega árið 1955 og er af hundinum Bósa úr Skagafirði sem Watson flutti út 1955.

"Þegar Watson var að flytja hunda af landi brott, fékk hann stundum að geyma þá tíma og tíma á Keldum, meðan þeir biðu ferðar úr landi. Ég minnist þess að eitt sinn kom bóndi norðan úr Skagafirði með hund, til geymslu að Keldum, en Watson hafði keypt þennan hund fyrir norðan.

Þegar bóndi snéri frá klefanum, þar sem geyma átti hundinn tók rakki hans að ýlfra sárt og bera sig aumlega. Bóndi fór þá inn til hans og reyndi að róa hann, snéri síðan aftur en allt fór á sömu leið. Bóndi tók þá af sér annan skóinn, klæddi sig úr sokknum og lét hann inn í klefann. Þetta dugði.

Báðum mun þó hafa verið nokkuð erfiður skilnaðurinn. Enn man ég glöggt þegar við horfðum eftir bónda lötra niður heimreiðina sokklaus á öðrum fæti. Sokksins mun hundurinn hafa gætt þar til hann var settur í sóttkví á Bretlandi."



SAMFÉLAGSMIÐLAR

HAFA SAMBAND

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
Phone: +354 893 3817
[email protected]

HAFA SAMBAND

Sími: +354 893 3817
[email protected]

HEIMILISFANG

Lýtingsstaðir, 561 Varmahlíð.
561 Varmahlíð
Ísland

SoknaraetlunStjórnarráðRoyal Canin